07. febrúar 2023Innviðaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - fræðsluátak Persónuverndar og Fjölmiðlanefndar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, undirrituðu í liðinni viku 10 m.kr. samning vegna verkefnis sem felur í sér fræðsluátak. Aðgerðin er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í netöryggi 2022-2027.