10. desember 2021Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra opnaði málþing um mannréttindi á tímum loftslagsbreytinga
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti opnunarávarp á málþingi um mannréttindi og réttlæti á tímum loftslagsbreytinga. Alþjóðamálastofnun, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið stóðu fyrir málþinginu í tilefni af alþjóðadegi mannréttinda í Veröld, húsi Vigdísar í hádeginu í dag.