10. ágúst 2021Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið
Kynntu aðgerðir til að efla skapandi greinar
Sett verður á fót sérstakt markaðsráð Skapandi Íslands, Listaháskólinn fer í nýtt húsnæði, stofnað verður rannsóknarsetur skapandi greina við Bifröst, Hagstofan mun birta menningarvísa og ritað hefur verið undir samning stjórnvalda og Listaháskólans um kvikmyndanám. Ríkisstjórnin kynnti í dag 5 aðgerðir úr aðgerðaáætlun sinni til eflingar skapandi greina.