08 september 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
17 verkefni fá styrk í annarri úthlutun Örvars 2026
Alls hljóta 17 verkefni styrk úr Örvari í annarri úthlutun sjóðsins árið 2026. Samtals bárust 32 umsóknir og nemur heildarfjárhæð styrkjanna 18.920.000 krónum.
Örvar hefur það hlutverk að styrkja verkefni og viðburði á málefnasviðum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 1,5 m.kr.
Verkefnin sem hljóta styrk að þessu sinni eru fjölbreytt og tengjast meðal annars nýsköpun, miðlun menningararfs, hönnun, sviðslistum og skapandi starfi barna og ungmenna.
Hæstu styrkina að þessu sinni hljóta eftirfarandi verkefni:
- Hönnunarþing 2026 á Húsavík, á vegum Hraðsins, miðstöðvar nýsköpunar.
- 40 ára afmælisdagskrá Bad Taste Reykjavík, á vegum Smekkleysu SM ehf.
- Dans ársins 2027, á vegum Dansverkstæðisins.
- Varðveisla og miðlun heimilda um sögu og menningu samfélags heyrnarlausra á Íslandi, verkefni Sigríðar Völu Jóhannsdóttur.
- Fræðsluverkefni um markaðssetningu og stafræna miðla í menningarferðaþjónustu, á vegum Markaðsstofu Norðurlands.
Ávallt opið fyrir umsóknir
Hægt er að sækja um styrk úr Örvari allt árið en úthlutað er að jafnaði þrisvar sinnum á ári. Næsta úthlutun fer fram í desember og verða þá teknar til greina umsóknir sem berast fyrir lok dags 30. nóvember 2026. Allar nánari upplýsingar um Örvar má nálgast á vef Stjórnarráðsins. Upplýsingar um aðra styrki á vegum ráðuneytisins má sjá hér.
Heildarlisti yfir styrkþega