Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

03 maí 2017

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2017

{image.Description}
MOTIV.JonS
Hópmynd af öllum tilnefndum til Foreldraverðlauna ásamt ráðuneytisstjóra, formanni dómnefndar og formanni Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra voru afhent í 22. sinn í gær við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu. Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis ávarpaði samkomuna og afhenti verðlaunin ásamt Önnu Margréti Sigurðardóttur formanni Heimilis og skóla og Sigrúnu Eddu Eðvarðsdóttur, formanni dómnefndar.

Skíðaskóli Þelamerkurskóla hlaut Foreldraverðalun Heimilis og skóla 2017, verðlaun sem Dugnaðarforkur Heimilis og skóla hlaut Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir og hvatningarverðlaun voru veitt til samstarfs foreldrafélaga í Breiðholti og til verkefnisins Fróðir foreldrar, samstarf um foreldrafræðslu.

Sjá nánar um verðlaunahafa og verkefnin á vef Heimilis og skóla.