Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

20 september 2017

/

Utanríkisráðuneytið

Aukin þjónusta í vegabréfaumsóknum fyrir Íslendinga erlendis

{image.Description}
Íslensk vegabréf

Sendiráð Íslands í París, Tókýó og aðalræðisskrifstofan í New York hafa nú bæst í hóp þeirra sendiskrifstofa Íslands erlendis sem taka á móti umsóknum um vegabréf. Búnaður hefur verið til staðar í sendiráðum okkar í Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi, London, Berlín, Washington DC og Peking svo nú er hægt að sækja um vegabréf á 10 stöðum í heiminum.

Útgáfa vegabréfa fer í gegnum Þjóðskrá á Íslandi og er almennur afgreiðslutími þeirra um 3 vikur. 

Í nýútkominni skýrslu um utanríkisþjónustu til framtíðar kemur fram að mjög hátt hlutfall Íslendinga eru búsettir erlendis í samanburði við aðrar þjóðir eða 11,7%. Íslendingar með skráða búsetu í erlendum ríkjum þar sem íslenskt sendiráð er starfrækt eru samkvæmt Þjóðskrá 41.584 talsins og 4.808 í ríkjum þar sem ekki er sendiráð. Fjölgun umsóknarstaða nú er liður í því að bæta þjónustu við þennan hóp enn frekar. Í skýrslunni er jafnframt lagt til að búnaður verði endurnýjaður og umsóknarstöðum fjölgað. Jafnframt verði gerð úttekt á kostnaði og fyrirkomulagi á hugsanlegum færanlegum búnaði vegna slíkrar þjónustu við Íslendinga á fjarlægum slóðum og gengið til viðræðna við Þjóðskrá um hvort og hvernig megi auðvelda útgáfu vegabréfa fyrir íslenska ríkisborgara erlendis.