Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
23 febrúar 2018
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Hækkun tekjumarka og eignamarka vegna húsnæðisstuðnings
Velferðarráðuneytið hefur uppfært tekju- og eignaviðmið í leiðbeiningum til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings. Tekjumörk hækka um ríflega 7% milli ára og eru nýju tekjumörkin eftirfarandi:
| Fjöldi heimilismanna | Neðri tekjumörk á ári | Efri tekjumörk á ári | Neðri tekjumörk á mánuði | Efri tekjumörk á mánuði |
|---|---|---|---|---|
| 1 | 3.622.600 | 4.528.250 | 301.883 | 377.354 |
| 2 | 4.791.180 | 5.988.975 | 399.265 | 499.081 |
| 3 | 5.609.187 | 7.011.484 | 467.432 | 584.290 |
| 4 eða fleiri | 6.076.620 | 7.595.775 | 506.385 | 632.981 |
Eignamörk hækka milli ára úr 5.126.000 kr. í 5.510.000 kr.
Ráðuneytið beinir því til sveitarfélaga að taka mið af framangreindri hækkun við endurskoðun eigin reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.