Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
23 mars 2018
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Heimsókn frá sendiherra Kanada
Sendiherra Kanda, Anne-Tamara Lorre, fundaði óformlega með Lilju Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra á dögunum. Á fundi sínum ræddu þær einkum mál er snúa að menningarsamskiptum þjóðanna og málefni norðurslóða.
„Ísland og Kanda hafa átt farsælt samstarf á ýmsum sviðum í gegnum árin. Við finnum jafnan fyrir miklum hlýhug frá þeim, ekki síst vegna tengsla okkar gegnum sögu og menningu Vestur-Íslendinga. Við sendiherrann ræddum ýmis spennandi sóknarfæri og hugmyndir, meðal annars um menntun fólks af erlendum uppruna og tvítyngi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.