Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30 júlí 2018
/
Dómsmálaráðuneytið
Kristín Þórðardóttir skipuð sýslumaður
Dómsmálaráðherra hefur skipað Kristínu Þórðardóttur til að vera sýslumaður á Suðurlandi frá 1. ágúst nk. Kristín er fædd hinn 6. september 1979. Hún lauk lögfræðiprófi frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2006.
Sambýlismaður Kristínar er Friðrik Erlingsson og eiga þau þrjú börn.
Kristín starfaði eftir útskrift sem fulltrúi og staðgengill sýslumanns og lögreglustjóra á Hvolsvelli en frá árinu 2015 hefur hún gegnt því starfi á sameinuðu embætti sýslumanns á Suðurlandi.
Hún hefur verið settur sýslumaður á Suðurlandi frá 1. maí 2017.Sambýlismaður Kristínar er Friðrik Erlingsson og eiga þau þrjú börn.