Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
23 nóvember 2018
/
Innviðaráðuneytið
Niðurstaða A-hluta umsóknarferlis vegna Ísland ljóstengt 2019
Umsóknarferli fjarskiptasjóðs vegna verkefnisins Ísland ljóstengt skiptist að þessu sinni í A, B og C-hluta. Gögn bárust frá eftirfarandi sveitarfélögum vegna A-hluta sem er nokkurs konar forval.
- Vesturland: Borgarbyggð og Dalabyggð.
- Vestfirðir: Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.
- Norðurland vestra: Húnaþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður.
- Norðurland eystra: Langanesbyggð og Norðurþing.
- Austurland: Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað.
- Suðurland: Bláskógabyggð, Flóahreppur, Hrunamannahreppur, Skaftárhreppur og Sveitarfélagið Árborg.
- Höfuðborgarsvæði: Kjósarhreppur, Mosfellsbær og Reykjavíkurborg.
- Suðurnes: Engin gögn bárust frá sveitarfélögum á Suðurnesjum.
Við tekur B-hluti sem felst í samningaviðræðum verkefnisstjórnar Ísland ljóstengt við sveitarfélög sem hafa hug á því að tryggja sameiginlega verklok í viðkomandi landshluta á næsta eða allra næstu árum á grundvelli samvinnustyrks.
Ofangreind sveitarfélög sem ná ekki samkomulagi um samvinnustyrk eða hugnast síður sú leið, fá tækifæri til að sækja um styrki með samkeppnisfyrirkomulagi í C-hluta, að B-hluta loknum.