Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

18 janúar 2019

/

Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla um heilsu flóttafólks og innflytjenda

{image.Description}
Heilbrigðisráðuneytið
Dr. Zsuzsanna Jakab á fundi smáríkjafundar WHO í Reykjavík í júní 2018

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) kynnir næstkomandi mánudag nýja skýrslu um heilsu flóttafólks og innflytjenda í Evrópu. Þetta er fyrsta skýrsla stofnunarinnar um þetta málefni. Bein útsending verður frá kynningunni í gegnum streymi á Facebook.

 

Dr. Zsuzsanna Jakab, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO og Dr Santino Severoni samræmingarstjóri lýðheilsu og fólksflutninga munu kynna skýrsluna í Genf, mánudaginn 21. janúar, kl. 12.00 að íslenskum tíma.