Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

21 febrúar 2019

/

Dómsmálaráðuneytið

Forsætisráðuneytið

Fulltrúar Amnesty International afhenda forsætisráðherra skýrslu

{image.Description}
Laura Carter, sérfræðingur og rannsakandi hjá aðalstöðvum Amnesty International í London, Yamini Mishra, yfirmaður deildar aðalstöðva Amnesty International sem snýr að málefnum er varða kyn, kynferði- og sjálfsmynd, Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International, Bryndís Bjarnadóttir, herferðastýra Íslandsdeildar Amnesty International, Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur á skrifstofu jafnréttismála og Halla Gunnarsdóttir, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum.

Fulltrúar Íslandsdeildar Amnesty International afhentu forsætisráðuneytinu niðurstöðu skýrslu samtakanna: „No Shame in Diversity: The Right to Health for People with Variations of Sex Characteristics in Iceland“ sem komin er út. Halla Gunnarsdóttir, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum og formaður stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi, tók við skýrslunni fyrir hönd forsætisráðherra.

Skýrslan er afrakstur rannsóknar sem aðalstöðvar Amnesty International ýttu úr vör í fyrra þar sem staða fólks með ódæmigerð kyneinkenni innan heilbrigðiskerfisins á Íslandi var skoðuð.

 

No Shame in Diversity: The Right to Health for People with Variations of Sex Characteristics in Iceland