Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

25 febrúar 2019

/

Heilbrigðisráðuneytið

Starfsáætlun Embættis landlæknis til ársins 2020

{image.Description}
WHO
Heilsa og vellíðan með heimsmarkmiðunum

Athygli er vakin á starfsáætlun Embættis landlæknis til ársins 2020 sem birt hefur verið á vef embættisins. Í starfsáætluninni kemur fram hverjar verða helstu áherslur í störfum embættisins og hvaða aðgerðir verða í forgangi. Verkefnin varða almenning, fagfólk og stjórnvöld, auk þess að snúa að innra starfi embættisins.

 

Í starfsáætluninni er jafnframt birtur listi yfir 20 mælikvarða til að leggja mat á stöðu lykilverkefna hjá embættinu. Starfsáætluninni er ætlað að vera vegvísir í daglegu starfi embættisins og mælikvarði á árangur þess.