Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

01 apríl 2019

/

Forsætisráðuneytið

Fundað í Stjórnarráðinu með forsvarsmönnum sveitarfélaga á Suðurnesjum

{image.Description}
Fundað í Stjórnarráðinu með forsvarsmönnum sveitarfélaga á Suðurnesjum

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, boðaði í morgun til fundar í Stjórnarráðinu með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fulltrúum Reykjanessbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga, auk fulltrúa fjármála- og efnahagsráðuneytisins. 

Farið var almennt yfir stöðu mála í kjölfar falls WOW air hf. á fundinum og mikilvægi þess að ríki og sveitarfélög vinni sameiginlega að viðbrögðum til skemmri og lengri tíma.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Það er gott að finna hve sveitarfélög á Reykjanesi eru samhent í viðbrögðum sínum og á fundinum var m.a. rætt um mikilvægi þess að opinberar framkvæmdir sem gert er ráð fyrir á svæðinu og verkefni af hálfu hins opinbera haldi markvisst áfram. Í mínum huga er ekki síður mikilvægt að halda vel utan um fólkið, fjölskyldurnar og börnin sem þetta hefur áhrif á. Félags- og barnamálaráðherra, heilbrigðisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirbúa nú öll aðgerðir til að mæta auknu álagi á svæðinu. Við vorum einhuga um að finna uppbyggilegar lausnir til skemmri og lengri tíma til að mæta þeirri stöðu sem upp er komin“.