Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28 júní 2019
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2019 til 30. júní 2020
Föstudaginn 21. júní 2019 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2019 til 30. júní 2020.
Samtals bárust tólf umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.
Samtals bárust sjö gild tilboð í tollkvótann.
Sex tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 232.000 kg á meðalverðinu 129 kr./kg. Hæsta boð var 375 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg á meðalverðinu 245 kr./kg.
Tvö tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 74.000 kg á meðalverðinu 0 kr./kg. Hæsta boð var 0 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 64.000 kg á meðalverðinu 0 kr./kg.
Ein umsókn barst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 100.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.
Þrjú tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 87.000 kg á meðalverðinu 1 kr./kg. Hæsta boð var 1 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á meðalverðinu 1 kr./kg.
Fjórar umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 25.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.
Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 184.000 kg á meðalverðinu 330 kr./kg. Hæsta boð var 650 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á meðalverðinu 478 kr./kg.
Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 55.000 kg á meðalverðinu 3 kr./kg. Hæsta boð var 10 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 55.000 kg á meðalverðinu 3 kr./kg. Tollkvóti er 76.000 kg.
Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 78.000 kg. á meðalverðinu 372 kr./kg. Hæsta boð var 740 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 78.000 kg á meðalverðinu 372 kr./kg. Tollkvóti er 86.000 kg.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
28.000 |
Ekran ehf |
|
15.000 |
Innnes ehf |
|
20.000 |
Garri ehf |
|
20.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
12.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
8.649 |
Ekran ehf. |
|
55.351 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
100.000 |
Ekran ehf |
Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
2.855 |
Garri ehf |
|
56.145 |
Innnes ehf |
Smjör fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Ekran ehf. |
|
5.000 |
Danól ehf |
|
2.000 |
Krónan ehf |
|
8.000 |
Nautica ehf |
Ostur fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
70.000 |
Aðföng |
|
29.000 |
Innnes ehf |
|
20.000 |
Mjólkursamsalan ehf |
Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
15.000 |
Aðföng |
|
20.000 |
Ekran ehf |
|
20.000 |
Innnes ehf |
Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2019 - júní 2020
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Aðföng |
|
20.000 |
Ekran ehf |
|
20.000 |
Innnes ehf |
|
4.000 |
Garri ehf |
|
24.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Reykjavík, 27. júní 2019
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu