Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
20 desember 2019
/
Dómsmálaráðuneytið
Ingveldur Einarsdóttir skipuð hæstaréttardómari
Dómsmálaráðherra hefur gert tillögu til forseta Íslands um skipun Ingveldar Einarsdóttur, landsréttardómara, sem dómara við Hæstarétt Íslands frá 1. janúar 2020. Við skipan Ingveldar í Hæstarétt losnar embætti eins dómara í Landsrétti og verður það embætti auglýst laust til umsóknar fljótlega.