Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

21 nóvember 2020

/

Forsætisráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fræðsluátak um gervigreind

{image.Description}

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær að ráðist verði í fræðsluátak fyrir almenning um gervigreind. Er það í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni.

Markmið fræðsluátaksins er að efla fólk til að nýta sér þau tækifæri sem felast í gervigreind í sínu nærumhverfi á vinnumarkaði og annars staðar. Til þess að skapa megi grunn fyrir nýtingu tækni gervigreindar á Íslandi er mikilvægt að þekking á því sviði sé útbreidd í samfélaginu.

Grunnurinn í fræðsluátakinu verður þekkt gervigreindarnámskeið sem þróað hefur verið af Háskólanum í Helsinki og finnsku ráðgjafafyrirtæki. Námskeiðið hefur verið þýtt og notað víða um heim en gert er ráð fyrir að þýðing yfir á íslensku taki um fjóra mánuði. Fræðsluátakið gæti því farið af stað snemma vors 2021 en námskeiðið verður öllum opið á netinu.