Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

08 desember 2020

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Forsætisráðuneytið

Verði ykkur að góðu: Kynning á Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030

{image.Description}

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynna nýja Matvælastefnu fyrir Ísland til ársins 2030, fimmtudaginn 10.desember kl 11:30. 

Kynningin verður í beinu streymi og má fylgjast með henni hér. 

Fundurinn verður einnig í beinu streymi á Facebook. 

Í fyrsta sinn hefur nú verið mörkuð matvælastefna fyrir Ísland, en markmið hennar er að tryggja aðgengi að góðum mat, auka heilbrigði þjóðarinnar í sátt við umhverfi og náttúru og leggja grunninn að meiri verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi.

Við mótun matvælastefnunnar voru fimm lykilþættir hafðir að leiðarljósi: Verðmætasköpun, neytendur, ásýnd og öryggi, umhverfið og lýðheilsa. Í matvælastefnunni er einnig sett fram aðgerðabundin áætlun sem miðar að því að mæta áskorunum framtíðarinnar.

Dagskrá:

  • Ávarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra
  • Ávarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Kynning á Matvælastefnu Vala Pálsdóttir, formaður verkefnastjórnar Matvælastefnu
  • Kynning á aðgerðaráætlun

Örerindi:

  • Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir, formaður Landsambands Kúabænda
  • Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumaður og eigandi Slippsins í Vestmannaeyjum
  • Anna Kristín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá Marel
  • Þóra Þórisdóttir, eigandi Matarbúðarinnar Nándarinnar

Vilhelm Anton Jónsson, stýrir fundinum