Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

07 janúar 2021

/

Heilbrigðisráðuneytið

Til umsagnar: Frumvarp til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu

{image.Description}
Embætti landlæknis er á 6. hæð í Turninum við Höfðatorg í Katrínartúni

Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að frumvarpi til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu. Þar eru lagðar til breytingar til að skýra heimildir til kvörtunar til embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu, auk þess að skýra málsmeðferð í slíkum málum og gera einfaldari þannig að hún falli betur að störfum og hlutverki landlæknis. Umsagnarfrestur er til 20. janúar næstkomandi.