Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26 janúar 2021
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til apríl 2021
Fimmtudaginn 14. janúar 2021 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1323/2020 fyrir tímabilið 1. janúar til 30. apríl 2021. Samtals bárust 23 gild tilboð í tollkvótann.
Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 536.000 kg. á meðalverðinu 177 kr./kg. Hæsta boð var 620 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 232.000 kg. á meðalverðinu 330 kr./kg.
Svínakjöt í vörulið 0203. Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 651.300 kg. á meðalverðinu 106 kr./kg. Hæsta boð var 303 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 233.000 kg. á meðalverðinu 204 kr./kg.
Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 894.700 kg á meðalverðinu 217 kr./kg. Hæsta boð var 403 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 285.000 kg á meðalverðinu 357 kr./kg.
Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 154.000 kg á meðalverðinu 117 kr./kg. Hæsta boð var 271 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 67.000 kg á meðalverðinu 239 kr./kg.
Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 131.000 kg. á meðalverðinu 40 kr./kg. Hæsta boð var 332 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 33.000 kg. á meðalverðinu 147 kr./kg.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 300.000 kg. á meðalverðinu 305 kr./kg. Hæsta boð var 788 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 127.000 kg. á meðalverðinu 642 kr./kg.
Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Þrettán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 404.550 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1323/2020 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 77.000 kg., til tíu fyrirtækja.
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Átján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 322.400 kg. á meðalverðinu 64 kr./kg. Hæsta boð var 459 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 83.000 kg. á meðalverðinu 233 kr./kg.
Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Nítján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 426.100 kg. á meðalverðinu 128 kr./kg. Hæsta boð var 561 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þrettán fyrirtækjum um innflutning á 133.000 kg. á meðalverðinu 329 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
20.000 |
Aðföng |
|
9.714 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
130.000 |
Ekran ehf |
|
1.429 |
Garri ehf |
|
10.000 |
Innnes ehf |
|
8.000 |
Kjarnafæði ehf |
|
25.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
8.000 |
Krónan ehf |
|
6.000 |
Samkaup sf |
|
13.857 |
Sælkeradreifing ehf |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
25.000 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
44.000 |
Ekran ehf |
|
300 |
Innnes ehf |
|
20.000 |
Kjarnafæði ehf |
|
10.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
5.000 |
Krónan ehf |
|
128.700 |
Mata ehf |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
60.000 |
Aðföng |
|
131.000 |
Ekran ehf |
|
30.000 |
Innnes ehf |
|
27.000 |
Kjarnafæði ehf |
|
4.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
5.000 |
Krónan ehf |
|
20.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
8.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
67.000 |
Ekran ehf |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
3.000 |
Aðföng hf |
|
400 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
7.000 |
Ekran ehf |
|
700 |
Garri ehf |
|
1.500 |
Innnes ehf |
|
7.000 |
Krónan ehf |
|
3.400 |
Sláturfélag Suðurlands ehf |
|
10.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Ostur og ystingur 0406
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
20.000 |
Aðföng |
|
3.000 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
5.000 |
Garri ehf |
|
22.000 |
Innnes ehf |
|
16.000 |
Krónan ehf |
|
1.500 |
Market ehf |
|
2.000 |
Mini Market ehf |
|
5.000 |
Mjólkursamsalan ehf |
|
31.000 |
Natan &Olsen |
|
3.500 |
Samkaup sf |
|
15.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
3.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 1323/2020
|
Úthlutað magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
8.000 |
Aðföng |
|
7.000 |
Danól ehf |
|
11.550 |
Krónan ehf |
|
11.550 |
Mata ehf |
|
11.550 |
Mjólkursamsalan |
|
11.550 |
Natan & Olsen ehf |
|
800 |
Nautica ehf |
|
1.000 |
Samkaup sf |
|
10.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
4.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Pylsur og þess háttar vörur 1601
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
3.000 |
Aðföng |
|
200 |
Ásbjörn Ólafsson ehf |
|
700 |
Danól ehf |
|
3.000 |
Ekran ehf |
|
1.800 |
Family Ink ehf |
|
1.500 |
Innnes ehf |
|
9.000 |
Krónan ehf |
|
17.000 |
Market ehf |
|
32.700 |
Mini market ehf |
|
4.500 |
Nautica ehf |
|
1.600 |
Rain ehf |
|
8.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
25.000 |
Aðföng |
|
30.000 |
Ásbjörn ólafsson ehf |
|
2.358 |
Danól ehf |
|
5.000 |
Ekran ehf |
|
8.000 |
Garri ehf |
|
2.042 |
Innnes ehf |
|
5.000 |
KFC ehf |
|
20.000 |
Krónan ehf |
|
3.000 |
Market ehf |
|
6.000 |
Mini Market ehf |
|
1.100 |
Rain ehf |
|
5.000 |
Stjarnan ehf |
|
20.500 |
Sælkeradreifing ehf |
Reykjavík, 25. janúar 2021
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu