Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

03 febrúar 2021

/

Innviðaráðuneytið

Lokaúthlutun Ísland ljóstengt hafin

{image.Description}
Mynd: iStock

Fjarskiptasjóður undirbýr nú fyrir hönd ríkisins lokaúthlutanir á styrkjum til sveitarfélaga á grundvelli verkefnisins Ísland ljóstengt, sem er tímabundið landsátak stjórnvalda í ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða.

Fyrirliggjandi samningar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga ná þegar til flestra styrkhæfra bygginga í dreifbýli landsins.

Umsóknarferlið að þessu sinni skiptist í A-hluta og B-hluta. Móttöku umsóknargagna vegna A-hluta lýkur 1. mars 2021. Nánari upplýsingar eru í skilmálum og umsóknargögnum.