Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

26 febrúar 2021

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Kristján Þór skipar stjórn Fiskeldissjóðs

{image.Description}
Golli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fyrstu stjórn Fiskeldissjóðs. Hlutverk sjóðsins er að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.

Stjórnina skipa þau: 

  • Haraldur Líndal Haraldsson, formaður, skipaður án tilnefningar
  • Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af forsætisráðherra, 
  • Kjartan Dige Baldursson, tilnefndur af fjármála-og efnahagsráðherra. 

 

Stjórn Fiskeldissjóðs hefur yfirumsjón með rekstri hans. 

Tekjur sjóðsins eru hlutfall af því gjaldi sem rekstrarleyfishafar fiskeldisstöðva í sjó greiða í ríkissjóð samkvæmt lögum nr. 89/2019. Stjórn sjóðsins mun fljótlega auglýsa eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem eru til þess fallin að byggja upp innviði og þjónustu á svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Áætlað er að sjóðurinn hafi 113 milljónir króna til umráða á árinu 2021.