14 júní 2021
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022
Þriðjudaginn 25. maí 2021 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí 2021 til 30. júní 2022.
Samtals bárust sextán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum og ostum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var á grundvelli reglugerðar nr. 541/2021.
Samtals bárust sextán gild tilboð í tollkvótann.
Átta tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 289.000 kg á meðalverðinu 119 kr./kg. Hæsta boð var 351 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 95.000 kg. á meðalverðinu 249 kr./kg.
Sex tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 119.000 kg á meðalverðinu 2 kr./kg. Hæsta boð var 13 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 64.000 kg. á meðalverðinu 3 kr./kg.
Tvær umsóknir bárst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 45.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 345.000 kg.
Ellefu tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 414.500 kg á meðalverðinu 75 kr./kg. Hæsta boð var 200 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 59.000 kg á meðalverðinu 143 kr./kg.
Sex umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 40.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 53.000 kg.
Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 346.000 kg á meðalverðinu 165 kr./kg. Hæsta boð var 527 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 119.000 kg á meðalverðinu 367 kr./kg.
Fimm umsóknir bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 51.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 76.000 kg.
Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 276.000 kg. á meðalverðinu 262 kr./kg. Hæsta boð var 623 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 86.000 kg á meðalverðinu 457 kr./kg.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
31.500 |
Ekran ehf |
|
20.000 |
Garri ehf |
|
25.000 |
Innnes ehf |
|
12.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
6.500 |
Sælkeradreifing ehf |
Svínakjöt fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Ekran ehf. |
|
10.000 |
Innnes ehf |
|
27.333 |
Mata hf |
|
10.000 |
Krónan hf |
|
5.000 |
Samkaup hf |
|
1.667 |
Stjörnugrís ehf |
Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
40.000 |
Ekran ehf |
|
5.000 |
Samkaup hf |
Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Ekran ehf |
|
14.000 |
Innnes ehf |
|
13.500 |
Kjarnafæði hf |
|
1.500 |
Mata hf |
|
20.000 |
Stjörnugrís ehf |
Smjör fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
1.000 |
Aðföng |
|
4.000 |
Danól ehf |
|
10.000 |
Innnes ehf |
|
10.000 |
Krónan hf |
|
10.000 |
Natan & Olsen hf |
|
5.000 |
Samkaup hf |
Ostur fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
35.000 |
Aðföng |
|
10.000 |
Garri ehf |
|
40.000 |
Innnes ehf |
|
18.000 |
Krónan hf |
|
5.000 |
KFC ehf |
|
909 |
Mjólkursamsalan ehf |
|
10.000 |
Nathan & Olsen hf |
|
91 |
Nautica ehf |
Fuglsegg fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
11.000 |
Danól ehf |
|
10.000 |
Ekran ehf |
|
20.000 |
Innnes ehf |
|
5.000 |
Krónan hf |
|
5.000 |
Samkaup hf |
Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí 2021 - júní 2022
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
35.000 |
Aðföng |
|
20.000 |
Danól ehf |
|
12.000 |
Ekran ehf |
|
10.000 |
Krónan hf |
|
9.000 |
Samkaup hf |