30 ágúst 2021
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum frá Evrópusambandinu á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 16. september til 31. desember 2021
Fimmtudaginn 19. ágúst 2021, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 600/2021 fyrir tímabilið 16. september til 31. desember 2021. Tollkvótum var nú í fyrsta sinn úthlutað í gegnum vefkerfið tollkvóti.is. Samtals bárust 24 gild tilboð í tollkvótann.
Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 548.050 kg. á meðalverðinu 173 kr./kg. Hæsta boð var 455 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 232.000 kg. á meðalverðinu 328 kr./kg.
Svínakjöt í vörulið 0203. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 752.003 kg. á meðalverðinu 124 kr./kg. Hæsta boð var 252 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 234.000 kg. á meðalverðinu 216 kr./kg.
Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 959.006 kg á meðalverðinu 298 kr./kg. Hæsta boð var 460 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 286.000 kg á meðalverðinu 421 kr./kg.
Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 155.000 kg á meðalverðinu 101 kr./kg. Hæsta boð var 249 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 66.000 kg á meðalverðinu 228 kr./kg.
Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 105.100 kg. á meðalverðinu 41 kr./kg. Hæsta boð var 301 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 34.000 kg. á meðalverðinu 123 kr./kg.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 333.000 kg. á meðalverðinu 386 kr./kg. Hæsta boð var 850 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 126.000 kg. á meðalverðinu 714 kr./kg.
Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Sjö umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 403.400 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 600/2021 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 76.000 kg., til átta fyrirtækja.
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 209.700 kg. á meðalverðinu 93 kr./kg. Hæsta boð var 401 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá ellefu fyrirtækjum um innflutning á 84.000 kg. á meðalverðinu 215 kr./kg.
Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 411.500 kg. á meðalverðinu 240 kr./kg. Hæsta boð var 601 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 134.000 kg. á meðalverðinu 408 kr./kg.
Úthlutunin er sú þriðja og síðasta á þessu ári og voru alls 3.812 tonnum af tollkvóta úthlutað á árinu fyrir innflutning á kjöti, ostum og unnum kjötvörum frá ríkjum Evrópusambandsins. Þar með er innleiðingu aukins tollkvóta á grundvelli samnings Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur sem tók gildi 1. maí 2018 lokið. Á myndinni að neðan má sjá þróun magns tollkvóta á ársgrundvelli sl. fjögur ár auk þróunar á vegnu meðalútboðsgjaldi. Meðalútboðsgjald hefur lækkað þónokkuð samhliða auknum tollkvótum enda er líklegra að lægri tilboð séu samþykkt með auknu magni í núgildandi útboðsfyrirkomulagi. Samanlagt útboðsgjald sem innheimt hefur verið á tímabilinu hefur þannig haldist nokkuð milli ára þrátt fyrir að tollkvótar hafi ríflega tvöfaldast.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
20.000 |
Aðföng |
|
25.000 |
Danól ehf |
|
92.950 |
Ekran ehf |
|
10.000 |
Garri ehf |
|
35.000 |
Innnes ehf |
|
26.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
6.000 |
Krónan hf |
|
50 |
Mata ehf |
|
10.000 |
Samkaup hf |
|
7.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
5.000 |
Danól ehf |
|
53.571 |
Ekran ehf |
|
36.000 |
Kjarnafæði hf |
|
4.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
75.429 |
Mata ehf |
|
60.000 |
Stjörnugrís ehf |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
89.823 |
Ekran ehf |
|
2.000 |
Garri ehf |
|
66.946 |
Innnes ehf |
|
4.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
86.231 |
Mata ehf |
|
20.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
17.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
63.000 |
Ekran ehf |
|
3.000 |
Krónan hf |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Aðföng hf |
|
1.000 |
Danól ehf |
|
2.400 |
Ekran ehf |
|
1.000 |
Garri ehf |
|
1.500 |
Innnes ehf |
|
100 |
Karl K. Karlsson – Bakkus ehf |
|
7.000 |
Krónan ehf |
|
1.000 |
Samkaup hf |
|
6.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
4.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Ostur og ystingur 0406
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
40.000 |
Aðföng |
|
1.000 |
Garri ehf |
|
25.000 |
Innnes ehf |
|
8.000 |
Krónan hf |
|
10.000 |
Mjólkursamsalan |
|
36.000 |
Natan &Olsen |
|
3.500 |
Samkaup sf |
|
2.500 |
Sælkeradreifing ehf |
Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 600/2021
|
Úthlutað magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
11.400 |
Danól ehf |
|
11.400 |
Innnes ehf |
|
11.400 |
Krónan hf |
|
3.000 |
Mata ehf |
|
11.400 |
Mjólkursamsalan |
|
11.400 |
Samkaup hf |
|
10.000 |
Stjörnugrís ehf |
|
6.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Pylsur og þess háttar vörur 1601
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Aðföng |
|
1.000 |
Danól ehf |
|
3.000 |
Ekran ehf |
|
2.200 |
Family Ink ehf |
|
500 |
Innnes ehf |
|
800 |
KFC ehf |
|
2.000 |
Krónan hf |
|
500 |
Karl K. Karlsson – Bakkus ehf |
|
23.000 |
Market ehf |
|
40.000 |
Mini Market ehf |
|
1.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
40.000 |
Aðföng |
|
6.000 |
Danól ehf |
|
7.000 |
Ekran ehf |
|
50.000 |
Innnes ehf |
|
5.000 |
KFC ehf |
|
7.500 |
Mini Market ehf |
|
1.500 |
Nautica ehf |
|
5.000 |
Stjarnan ehf |
|
12.000 |
Sælkeradreifing ehf |
Reykjavík, 24. ágúst 2021
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu