03 janúar 2022
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fréttaannáll mennta- og menningarmálaráðuneytis 2021
Mennta- og menningarmálaráðuneyti birtir hér fréttaannál ársins 2021. Árið var viðburðaríkt í starfi ráðuneytisins en markaðist einnig að töluverðu leyti af áhrifum heimsfaraldurs COVID-19. Unnið var að mörgum fjölbreyttum verkefnum og mikilvægir áfangar náðust sem sneru m.a. að uppbyggingu menntakerfisins, blómlegu menningarlífi og umbótum í innra starfi ráðuneytisins.