28 mars 2022

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Samningur um markaðsverkefnið Horses of Iceland endurnýjaður - Alls 3.341 hross flutt úr landi 2021

{image.Description}
Við undirritun samnings. F.v. Pétur Þ. Óskarsson frkvstj. Íslandsstofu, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Guðni Halldórsson form. Landssambands hestamannafélaga, Sveinn Steinarsson form. Félags hrossabænda, Jelena Ohm verkefnastjóri og Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í Félagi tamningamanna.

Nýr samningur um markaðsverkefnið Horses of Iceland var undirritaður í matvælaráðuneytinu fyrir helgi. Gegn jafnháu mótframlagi aðila úr greininni verður allt að 25 milljónum króna varið árlega næstu þrjú árin til að styðja við markaðssetningu á Íslenska hestinum og hestatengdum vörum. Markmið verkefnisins er að byggja upp orðspor íslenska hestsins á völdum erlendum mörkuðum og leggja þannig grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Íslandsstofa annast rekstur verkefnisins sem hefur verið starfrækt frá árinu 2016. Aðrir sem koma að verkefninu eru Landsamband hestamanna, Félag hrossabænda og Félag tamningamanna.

Árangur í markaðsstarfinu hefur verið góður frá upphafi verkefnisins og útflutningur aukist. Síðastliðið ár var metár í útflutningi íslenskra hrossa, en alls voru 3.341 hross flutt úr landi.

Jelena Ohm er verkefnastjóri Horses of Iceland hjá Íslandsstofu:
Það er mjög ánægjulegt að geta tryggt áframhaldandi markaðsstarf í þágu íslenska hestsins og hagsmunaaðila í greininni. Mikill stígandi hefur verið í starfinu og aukinn áhugi á þessum knáa hesti. En það er enn verk að vinna og tækifæri til að sækja á nýja markaði

Það er ljóst að það samhæfða markaðsstarf sem Horses of Iceland hefur staðið fyrir síðastliðin fjögur ár hefur borið árangur og því er það í senn ánægjulegt og mikilvægt að styðja við það áfram, segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra.