26 apríl 2022
/
Dómsmálaráðuneytið
Forsætisráðuneytið
Vistheimili á Hjalteyri og vöggustofur í Reykjavík falli undir lög um sanngirnisbætur
Lög um sanngirnisbætur verða endurskoðuð með það að markmiði að mál sem tengjast vistheimilinu á Hjalteyri og vöggustofum á vegum Reykjavíkurborgar falli undir lögin. Tillaga þess efnis frá Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og Jóni Gunnarssyni, dómsmálaráðherra var samþykkt á fundi ríkisstjórnar í morgun. Með endurskoðuninni verður tryggður réttur fyrrum vistmanna til að fá greiddar bætur vegna illrar meðferðar eða ofbeldis á meðan vistuninni stóð. Ekki mun fara fram rannsókn á heimilinu á Hjalteyri en Reykjavíkurborg hefur óskað eftir heimild stjórnvalda til þess að framkvæma skoðun á aðstæðum á vöggustofum borgarinnar.
Brýnt þykir að fylgja þeirri stefnu sem hefur verið mörkuð um framkvæmdina við greiðslu sanngirnisbóta og ljúka þeirri vegferð sem lagt var upp með í upphafi. Mikilvægt þykir að jafnræðis verði gætt við meðferð þeirra mála sem hlotið hafa könnun vistheimilanefndar, þannig að einstaklingar sem bjuggu við sambærilegar aðstæður geti leitað úrlausnar sinna mála með einföldum og skilvirkum hætti.