03 maí 2022

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Daníel Svavarsson verður skrifstofustjóri í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

{image.Description}

Daníel Svavarsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu verðmætasköpunar í menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá 1. maí sl.  

Daníel hefur meistaragráðu í hagfræði og lauk doktorsprófi í viðskiptafræði frá Gautaborgarháskóla árið 2005. Hann hefur um tveggja áratuga reynslu af efnahagsgreiningum og starfaði m.a. um fimm ára skeið í Seðlabanka Íslands og gegndi stöðu aðalhagfræðings Landsbankans síðastliðin 12 ár.

Skrifstofa verðmætasköpunar vinnur þvert á málaflokka ráðuneytisins með verðmætasköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærni að leiðarljósi. Skrifstofan er leiðandi í greiningu og miðlun, þ.m.t. hagrænum rannsóknum á þeim málaflokkum er heyra undir ráðuneytið. Kemur skrifstofan þannig að stefnumótun á fjölbreyttum málefnasviðum ráðuneytisins og tengir saman menningu, viðskipti, fjölmiðla og ferðaþjónustu.

Það er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra sem skipar í embættið.