01 júní 2022

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Svandís afhenti Landgræðsluverðlaun í Gunnarsholti

{image.Description}
Landgræðslan
F.v - Árni Bragason landgræðslustjóri, Tryggvi Felixson formaður Landverndar, Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson frá Kaldbak á Rangárvöllum með fjórum barnabörnum, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar í Gunnarsholti 27. maí.

 

Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands.

Bændur á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið. 

Landvernd hlaut verðlaunin fyrir öflugt fræðslustarf síðustu árin tengt vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu. 

Matvælaráðherra afhenti verðlaunahöfum Fjöregg Landgræðslunnar, verðlaunagripi sem unnir eru úr tré í Eik-listiðju á Miðhúsum við Egilsstaði.