06 september 2022

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Ákvörðun verðlagsnefndar um hækkun heildsöluverðs og lágmarksverðs til framleiðenda

{image.Description}
iStock/Astrid860
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. september 2022:
• Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 4,56%, úr 111,89 kr./ltr í 116,99 kr./ltr.

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 8. september 2022:
• Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar almennt um 3,72%.

Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun í mars sl. með gildistöku 1. apríl 2022. Frá síðustu verðákvörðun til septembermánaðar 2022 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 4,56%. Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkað um 2,67% og er það grundvöllur hækkunar heildsöluverðs auk hækkunar á afurðaverði.

Sjá nánar á síðu verðlagsnefndar búvara.