07 september 2022

/

Forsætisráðuneytið

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Andrej Kúrkov hlýtur bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

{image.Description}
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Andrej Kúrkov, handhafi bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2022.

Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov hlaut í dag alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhenti Kúrkov verðlaunin í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt en þau eru jafnan veitt alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að stuðla að endurnýjun sagnalistar með verkum sínum.

Forsætisráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi, standa að verðlaununum.

Í valnefnd verðlaunanna að þessu sinni eru Egill Helgason fjölmiðlamaður, Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík, og Elif Shafak, handhafi verðlaunanna frá því í fyrra.