09 september 2022

/

Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

{image.Description}
DMR

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið haustið 2022. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnustu­réttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla á námskeiðinu fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Gert ráð fyrir að þátttakendum bjóðist að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað. Við skráningu verða þátttakendur beðnir um að tilgreina hvort þeir hyggist sitja námskeiðið í kennslusal eða gegnum fjarfundabúnað.

Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari fram dagana 26. september til 7. október 2022. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00). Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 13. til 28. október. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 7. til 18. nóvember 2022. Þá er stefnt að því að próf í síðari hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 21. til 25.‏ nóvember 2022.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 316.000 og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarkerfi á heimasíðu Lögmannafél­ags Íslands á slóðinni www.lmfi.is. Við skráningu skal leggja fram afrit próf­skírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi. Hægt er að senda þær upplýsingar með tölvupósti á netfangið: [email protected] eða senda á skrif­stofu Lögmannafélagsins að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til og með 23. september 2022.

Dómsmálaráðuneytið 9. september 2022