11 nóvember 2022
/
Utanríkisráðuneytið
Varnarmálaráðherrar JEF ræða öryggisáskoranir
Varnamálaráðherrar sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (Joint Expeditionary Force, JEF) funduðu í Edinborg dagana 9. – 10. nóvember. Ráðherrarnir ræddu öryggisástandið í Evrópu, stuðning ríkjanna við Úkraínu og hvernig þau geta í sameiningu mætt nýjum öryggisáskorunum til framtíðar. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Martin Eyjólfsson, sótti varnarmálaráðherrafundinn fyrir hönd utanríkisráðherra. Gefin var út sameiginleg yfirlýsing í kjölfar fundarins.
JEF er samstarfsvettvangur líkt þenkjandi Norður-Evrópuríkja um öryggis- og varnarmál með áherslu á norðurslóðir, Norður-Atlantshafið og Eystrasaltið. Samstarfinu er ætlað að tryggja skjót viðbrögð við hvers kyns aðstæðum á friðar-, hættu- og ófriðartímum, og styðja við annað fjölþjóðasamstarf, svo sem á vegum Atlantshafsbandalagsins. Þátttökuríkin eiga jafnframt reglubundið og virkt öryggispólitískt samráð.
Sjá yfirlýsingu fundarins hér.