14 desember 2022
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum lægri en fyrir faraldurinn
Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum þremur eru nú lægri en fyrir heimsfaraldurinn. Þetta kemur fram í tölum Seðlabanka Íslands. Þannig voru 0,7% lána heimila í vanskilum í september á þessu árið samanborið við 0,9% um áramót og í september í fyrra.
Um 2,4% lána fyrirtækja voru í vanskilum í lok september á þessu ári en hlutfallið var 3,4% um áramót og 4,2% í september í fyrra.
Þá er atvinnuleysi lítið í kjölfar kraftmikillar fjölgunar starfa að undanförnu. Á einu ári hafa nær 13.500 störf skapast í landinu og er atvinnuleysi jafnframt orðið minna en fyrir faraldurinn. Enn er talsverð spenna á vinnumarkaði og fjöldi fyrirtækja vill fjölga störfum á næstu misserum.
Lítil vanskil og lágt atvinnuleysi endurspeglast í niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofunnar sem kynnt var fyrr á árinu. Þar kemur fram að heimilin töldu gæði eigin lífskjara í, eða nálægt, sögulegu hámarki í fyrra. Samkvæmt könnuninni áttu 75% heimila ekki erfitt með að ná endum saman og aldrei höfðu færri heimili sagst hafa átt erfitt með að láta enda ná saman. Aldrei höfðu færri talið byrði húsnæðiskostnaðar þunga.
Í vikunni kynnti ríkisstjórnin stuðningsaðgerðir vegna kjarasamninga sem koma til viðbótar aðgerðum frá í sumar um stuðning við tekjulága vegna verðbólgu. Aðgerðirnar snúa einkum að stuðningi við lífskjör lág- og millitekjufólks með áherslu á húsnæðismál og aukinn stuðning við barnafjölskyldur. Áhersla er lögð á fjölgun íbúða og uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu með auknum stofnframlögum, endurbótum í húsnæðisstuðningi og bætta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda.
Þessar aðgerðir koma til viðbótar aðgerðum frá því fyrr á árinu til að styðja tekjulága vegna verðbólgu. Í maí var ákveðið að fara í umfangsmiklar mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á viðkvæmustu hópa samfélagsins. Þar var m.a. ráðist í hækkun bóta almannatrygginga og framfærsluviðmið örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega vegna sérstakrar uppbótar hækkað, grunnfjárhæðir húsnæðisbóta fyrir leigjendur hækkaðar umtalsvert og samþykkt að greiða út sérstakan barnabótaauka.
„Síðustu misseri hafa einkennst af mikilli óvissu og sveiflum um allan heim. Það er ekki sjálfsagt að staða heimila og fyrirtækja haldist sterk í gegnum slíka tíma og þess vegna er ánægjulegt að sjá þessa þróun í vanskilum framan af ári. Það er grundvallaratriði í okkar huga að halda áfram að styðja sérstaklega við þá sem mest þurfa, líkt og endurspeglast m.a. í þeim aðgerðum sem kynntar voru í vikunni til að styðja við kjarasamninga,“ segir Bjarni Benediktsson.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra: