29 desember 2022

/

Forsætisráðuneytið

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sjónvarpsþættir um skaðsemi hatursorðræðu

{image.Description}
Ingileif Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Ketchup Productions, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu í gær samning við Ketchup Productions um framleiðslu sjónvarpsþátta um skaðsemi hatursorðræðu. Greiðslur ráðuneytanna vegna verkefnisins nema alls fimm milljónum króna.

Sjónvarpsþættirnir verða sýndir á RÚV og miða að því að fræða ungmenni um hatursorðræðu. Um fjóra þætti er að ræða sem verða meðal annars notaðir við kennslu.