11 ágúst 2023

/

Heilbrigðisráðuneytið

Skýrsla um hlutverk veitenda geðheilbrigðisþjónustu

{image.Description}

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að skilgreina hlutverk og verkefni þeirra aðila sem veita fyrsta, annars og þriðja stigs geðheilbrigðisþjónustu hefur skilað skýrslu með niðurstöðum sínum. Verkefnið er liður í framkvæmd aðgerðaáætlunar í geðheilbrigðismálum til ársins 2027 sem samþykkt var á Alþingi í júní sl.

Stefna í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi í júní í fyrra og aðgerðaáætlun um framkvæmd hennar síðastliðið vor. Ein þeirra aðgerða sem ákveðið var að setja í forgang (2.C.1) felst í því að skilgreina hlutverk og verkefni þeirra sem veita geðheilbrigðisþjónustu á öllum þjónustustigum, greina samvinnu og samfellu þjónustunnar og hvað skorti þar á og koma með áætlun til úrbóta. Aðgerð 2.C.1 er tvíþætt og var starfshópi heilbrigðisráðherra falið að vinna þann hluta hennar sem felst í því að skilgreina hlutverk og verkefni þjónustuveitenda. Niðurstöður starfshópsins koma fram í meðfylgjandi skýrslu.