27 desember 2023

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Hækkun lágmarksverðs mjólkur

{image.Description}

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.

 

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 1. janúar 2024:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 2,25% úr 129,76 kr./ltr í 132,68 kr./ltr.

 

Eftirfarandi verðbreyting mun taka gildi þann 8. janúar 2024:

  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 1,60%.

 

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í september og tók gildi í október 2023. Frá síðustu verðákvörðun hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 2,25%. Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar.

 

 

 

VERÐLAGSNEFND BÚVARA