09 janúar 2024

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Viðbótargreiðslur til kúabænda

{image.Description}
Hari

Matvælaráðuneytið hefur greitt út viðbótargreiðslur til 484 kúabænda. Samtals voru greiddar út 500 m. kr. Greitt var í samræmi við innvegið magn mjólkur fyrstu ellefu mánuði ársins 2023. Skilyrði fyrir greiðslunum var jafnframt að mjólk hafi verið framleidd í nóvember 2023.

Greiðslurnar eru hluti viðbótarstuðnings samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis, og byggir á greiningu ráðuneytisstjórahóps þriggja ráðuneyta; matvælaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis. Hópurinn var skipaður í lok október vegna erfiðrar fjárhagsstöðu bænda.

Í desember sl. var einnig greiddur viðbótarnýliðunarstuðningur til ungbænda, viðbótarfjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt og nautgriparækt, viðbótarbýlisstuðningur til sauðfjárbænda og viðbótargripagreiðslur á holdakýr. Samtals hafa því verið greiddar 2.100 m.kr. til bænda á grundvelli tilllagna ráðuneytisstjórahópsins.

„Með tillögum ráðuneytisstjórahópsins og viðbótum frá meirihluta fjárlaganefndar sýna stjórnvöld að þau standa með landbúnaði á krefjandi tímum“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Stærsta hagsmunamál næstu mánaða fyrir samfélagið og þar með talda bændur er að ná verðstöðugleika þannig að forsendur skapist fyrir lægri vöxtum“.