22 janúar 2024
/
Utanríkisráðuneytið
Uppfærsla á fríverslunarsamningi EFTA-ríkjanna og Síle í höfn
EFTA-ríkin og Síle hafa komist að samkomulagi um uppfærslu á fríverslunarsamningi ríkjanna, sem tók gildi árið 2004. Áformað er að undirrita samninginn formlega í júní, á næsta ráðherrafundi EFTA í Genf.
Í samningnum felst nú frekari markaðsopnun fyrir viðskipti með vörur og þjónustu milli Íslands og Síle. Við gildistöku samningsins falla niður tollar í Síle af flestum iðnaðarvörum sem framleiddar eru hér á landi og þá bætast við tollfríðindi fyrir ýmsar helstu útflutningsafurðir Íslands í landbúnaði.
Auk þessa var nýjum köflum um viðskipti og sjálfbæra þróun, rafræn viðskipti og fjármálaþjónustu bætt við samninginn og nú er í fyrsta sinn í fríverslunarsamningi á vegum EFTA kafli um lítil og meðalstór fyrirtæki þar sem m.a. er kveðið á um upplýsingagjöf til fyrirtækja um samninginn.
EFTA-ríkin, Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa gert 30 fríverslunarsamninga við alls 41 ríki.