15 maí 2024

/

Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrar Íslands og Eystrasaltsríkjanna í Georgíu

{image.Description}
MFA Lithuania
Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, Baiba Braže, utanríkisráðherra Lettlands, og Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Litáens, ásamt Salome Zourabichvili, forseta Georgíu.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litáens. Ferð ráðherranna var farin í framhaldi af sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8-ríkjanna) sem gefin var út síðasta föstudag. 

Ráðherrarnir áttu fundi með forseta Georgíu, fulltrúum stjórnvalda, stjórnarandstöðu og frjálsra félagasamtaka. Með ferðinni vilja ráðherrarnir sýna stuðning við Georgíu og íbúa landsins á vegferð þeirra í átt að frekari aðild að vestrænu samstarfi, bæði Evrópusamstarfi sem og á vettvangi Atlandshafsbandalagsins. Landið hlaut stöðu umsóknarríkis um aðild að Evrópusambandinu í desember og hefur lengi unnið að aðild að Atlantshafsbandalaginu.

„Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa stutt dyggilega við vegferð Georgíu í átt að efnahagslegum og lýðræðislegum umbótum, allar götur síðan þjóðin öðlaðist sjálfstæði á ný,“ segir Þórdís Kolbrún. „Við óttumst að nýsamþykkt lög um meint gagnsæi erlendra áhrifa muni hafa neikvæð áhrif á stöðu Georgíu í hinum frjálsa heimi og þá er hún í andstöðu við greinilegan meirihlutavilja georgísku þjóðarinnar líkt og viðbrögð almennings bera með sér. Við þessu vildum við bregðast, en valið er að lokum alltaf í höndum Georgíu.“

Lagasetning um meint gagnsæi erlendra áhrifa, sem samþykkt var í georgíska þinginu í gær, hefur vakið alvarlegar spurningar um hvert landið stefnir. Lögin þykja samin undir sterkum rússneskum áhrifum, en sambærileg lög sem voru samþykkt í Rússlandi á sínum tíma höfðu alvarlegar afleiðingar fyrir fjölmiðla og starf frjálsra félagasamtaka þar í landi.