11 júní 2024

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Bjarki og Pálína aðstoða matvælaráðherra

{image.Description}
Bjarki Hjörleifsson og Pálína Axelsdóttir Njarðvík hafa verið ráðin aðstoðarmenn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Þau Bjarki Hjörleifsson og Pálína Axelsdóttir Njarðvík hafa verið ráðin sem aðstoðarmenn Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Bjarki er fæddur 1989 og ólst upp í Stykkishólmi. Hann vann sem sjálfstæður atvinnurekandi í matvælageiranum á árunum 2013–2018 og útskrifaðist með BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 2019.

Bjarki var kosningastjóri hjá Vinstri grænum í Norðvestur kjördæmi árin 2017 og 2021. Hann var einnig skrifstofustjóri á flokksskrifstofu Vinstri grænna árin 2019–2020 og vann sem sérfræðingur hjá þingflokki Vinstri grænna frá 2020 til 2024.

Pálína er fædd árið 1991 og ólst upp í Gnúpverjahreppi. Hún útskrifaðist sem stúdent frá Kvennaskólanum árið 2011, er menntuð í sálfræði og útskifaðist með BSc gráðu frá Háskóla Íslands árið 2016 og MSc í félagssálfræði árið 2019. Á árunum frá 2020 til 2022 starfaði hún sem sérkennslustýra og vann sem ráðgjafi hjá Attentus frá 2023-2024.

Pálína hefur hefur unnið sjálfstætt við efnissköpun og miðlun á samfélagsmiðlum frá árinu 2015 en hún hefur unnið sveitastörf frá unga aldri og deilt þeirri reynslu sinni á Instagram þar sem hún hefur eignast fjölda fylgjenda síðan 2015.