14 júní 2024
/
Dómsmálaráðuneytið
Skúla afhent skipunarbréf
Forseti Íslands hefur fallist á tillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra um skipan Skúla Magnússonar í embætti hæstaréttardómara. Dómsmálaráðherra afhenti Skúla skipunarbréf hæstaréttardómara á dögunum.
Dómnefnd um hæfni umsækjenda mat Skúla Magnússon hæfastan fjögurra umsækjenda. Skúli var kjörinn umboðsmaður Alþingis frá 1. maí 2021 og hefur gegnt því embætti síðan en skipan hans í Hæstarétt tekur gildi 1. ágúst 2024.