03 október 2024

/

Utanríkisráðuneytið

Ísland og Filippseyjar höfðu pólitískt samráð í New York

{image.Description}
Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra, og Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu, ásamt Theresu P. Lazaro, skrifstofustjóra málefna tvíhliða mála, og teymi hennar á sendiskrifstofu Filippseyja í New York.

Efnt var til pólitísks samráðs milli Íslands og Filippseyja þann 27. september sl. í tengslum við nýafstaðna ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og staðgengill ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, fundaði þá með Theresu P. Lazaro, skrifstofustjóra málefna tvíhliða mála, á sendiskrifstofu Filippseyja þar í borg. 

Var samráðið haft á grundvelli samkomulags sem gert var fyrr á þessu ári, um reglubundið pólitískt samráð ríkjanna. Meðal umræðuefna var tvíhliða samband ríkjanna, en töluverður fjöldi Filippseyinga er búsettur á Íslandi, eða hátt í 2.700 manns, og starfar einkum í heilbrigðisgeiranum. Var jákvætt framlag þeirra til íslensks samfélags undirstrikað á fundinum.  

Ennfremur var rætt um fríverslunarsamning EFTA við Filippseyjar, sem Ísland á aðild að, fjárfestingar og viðskipti milli ríkjanna og áhuga íslenskra stjórnvalda á tvísköttunar- og fjárfestingasamningi við Filippseyjar. Sömuleiðis hvort auðvelda megi útflutning á íslenskum sjávarafurðum til Filippseyja, sem er mikilvægt hagsmunamál eðli málsins samkvæmt, og mögulegt samstarf ríkjanna á sviði vísinda og orkumála.