12 nóvember 2024

/

Dómsmálaráðuneytið

Tveir umsækjendur um embætti dómanda við Endurupptökudóm

{image.Description}
DMR

Þann 11. október 2024 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti dómanda við Endurupptökudóm. Tveir sóttu um embættið: Berglind Svavarsdóttir lögmaður og Matthías G. Pálsson lögfræðingur.

Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar ráðherra umsögn sinni.