03 janúar 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Stefanía er aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra

{image.Description}
Stefanía Sigurðardóttir.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur ráðið Stefaníu Sigurðardóttur sem aðstoðarmann.

Stefanía útskrifaðist með BA gráðu í listrænni viðburðastjórnun árið 2011 frá Rose Bruford College í London. Þar var hún fyrst erlendra nema í skólanum kosin forseti stúdentaráðs skólans.

Stefanía hefur starfað sem framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar en starfaði áður sem verkefnastjóri viðburða á markaðssviði Háskólans í Reykjavík. Hún hefur einnig unnið við viðburðastjórnun, markaðsmál og ferðaþjónustu. Hún var jafnframt í kosningastjórn Viðreisnar í nýliðnum kosningum og í kosningastjórn Guðna Th. Jóhannessonar, fyrrum forseta Íslands. Stefanía hefur þegar tekið til starfa.