29 janúar 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

{image.Description}

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2025. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómstól. Kennsla á námskeiðinu fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álfta­mýri 9, 108 Reykjavík. Gert ráð fyrir að þátttakendum bjóðist að taka þátt í gegnum fjarfundabúnað. Við skráningu verða þátttakendur beðnir um að til­greina hvort þeir hyggist sitja námskeiðið í kennslusal eða gegnum fjarfundabúnað.

Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari fram dagana 17. til 28. febrúar 2025. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00). Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 6. til 21. mars 2025. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 26. mars til 4. apríl 2025. Þá er stefnt að því að próf í síðari hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 7. til 11.‏ apríl 2025.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 316.000 og greiðist við skráningu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarkerfi á heimasíðu Lögmannafélags Íslands á slóðinni www.lmfi.is. Við skráningu skal leggja fram afrit próf­skírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi. Hægt er að senda þær upplýsingar með tölvupósti á netfangið: [email protected] eða senda á skrifstofu Lögmannafélagsins að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til og með 11. febrúar 2024.

 

Dómsmálaráðuneytinu, 29. janúar 2025