30 janúar 2025

/

Forsætisráðuneytið

Samantekt um hagræðingartillögur almennings​

{image.Description}
Hari

Samantekt um tillögur, hugmyndir og sjónarmið sem bárust í verkefninu Verum hagsýn í rekstri ríkisins hefur verið birt í samráðsgátt. Alls bárust 3.985 umsagnir sem er metfjöldi og um 0,7% þjóðarinnar tók þátt í samráðinu.


Langflestar umsagnir bárust frá einstaklingum en rúmlega 60 bárust frá félagasamtökum og fyrirtækjum. Þá komu tæplega 68 prósent umsagna frá körlum en rúmlega 32 prósent frá konum. Í mörgum umsögnum eru settar fram margar tillögur en samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum er alls um tíu þúsund tillögur að finna í umsögnunum, margar eins eða af mjög svipuðum toga.


Umsagnirnar eru afar fjölbreyttar að efni. Í ljósi mikils fjölda var stuðst við gervigreindarhugbúnað til að aðstoða við að greina og flokka umsagnir eneinnig var farið sérstaklega yfir efni hverrar einustu umsagnar.


Samkvæmt greiningu á tillögunum má skipta þeim í ellefu meginþemu:


  • Sameining stofnana og bætt nýting fasteigna hins opinbera


  • Alþingi og Stjórnarráðið


  • Stafrænar lausnir, sjálfvirknivæðing og endurskoðun opinberrar þjónustu


  • Sala á eignum og breytingar á rekstri fyrirtækja í eigu ríkisins


  • Skattar, endurgreiðslur frá ríkinu og tilfærslukerfi


  • Opinber innkaup


  • Samgöngumál


  • Heilbrigðisþjónusta og lyf


  • Orku- og umhverfismál


  • Utanríkismál og erlent samstarf


  • Ýmsar kerfisbreytingar og hagræðingartillögur


Hagræðingarhópur sem forsætisráðherra skipaði á dögunum mun vinna að nánari greiningu á umsögnunum sem bárust í samráðsgátt og nýta þær í tillögum sínum um hagræðingu og umbætur í ríkisrekstri sem verða kynntar í lok febrúar. Einnig mun hópurinn nýta tillögur sem berast frá forstöðumönnum hjá ríkinu og frá ráðuneytum.