21 maí 2025

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Sunna Kristín ráðin í starf verkefnastjóra

{image.Description}
Kristinn Magnússon
Sunna Kristín Hilmarsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri stefnumála og samskipta hjá atvinnuvegaráðuneytinu.

Sunna Kristín Hilmarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri stefnumála og samskipta hjá atvinnuvegaráðuneytinu til sex mánaða.

Sunna hefur starfað í yfir áratug við fjölmiðla, almannatengsl og samskipta- og kynningarmál. Hún kemur til ráðuneytisins frá Háskólanum í Reykjavík þar sem hún hefur undanfarin tvö ár starfað sem verkefnastjóri samskipta og miðlunar, og aðallega sinnt verkefnum fyrir rektor HR.

Sunna starfaði áður í sjö ár sem blaðamaður og staðgengill fréttastjóra á fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar.

Sunna er með BA-próf í spænsku frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í suður-amerískum stjórnmálum frá University College London. Hún mun hefja störf í atvinnuvegaráðuneytinu á næstu vikum.