24 maí 2025

/

Utanríkisráðuneytið

Samráðsfundur bandalagsríkja á norðurslóðum

{image.Description}
Hópurinn sem tók þátt í samráðsfundi bandalagsríkja á norðurslóðum.

Samráðsfundur bandalagsríkja á norðurslóðum um viðbúnað og eftirlit  á svæðinu var haldinn á Íslandi 21.-22. maí. Fundinn sóttu háttsettir embættismenn varnarmálaráðuneyta Bandaríkjanna, Kanada og Norðurlandanna fimm, þar á meðal fulltrúar Færeyja og Grænlands. 

Til umræðu var varnarsamstarf ríkjanna sjö sem hefur aukist  undanfarin ár í ljósi hernaðaruppbyggingar Rússlands. Þá hefur aðild Finnlands og Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu styrkt samstarf ríkjanna á norðurslóðum og er  áhersla lögð á að samstarfið miði að því að efla fælingarmátt og varnir bandalagsins.  Ísland hélt utan um undirbúning  fundarins og fundarstjórn.  Þátttakendum var einnig boðin kynning á framkvæmd varnartengdra verkefna á öryggissvæðinu í Keflavík.