04 júní 2025

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Daði Már sótti ráðherraráðsfund OECD

{image.Description}
Mynd/OECD
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat í vikunni ráðherraráðsfund Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, í París. Meginefni fundarins voru horfur og áskoranir í efnahagsmálum, en rík áhersla var lögð á frjáls alþjóðaviðskipti og fjárfestingu, bæði opinbera og af hálfu einkaaðila, sem drifkrafta verðmætasköpunar.

Fjármála- og efnahagsráðherra fundaði einnig með ráðherrum Kosta Ríka, Nýja Sjálands og Eistlands, en hin tvö fyrrnefndu eru ásamt Íslandi og Sviss stofnaðilar að samningi um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun. Markmið samningsins er að nýta hefðbundin ákvæði viðskiptasamninga til að styðja við orkuskipti og aðrar aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum. Ráðherra átti einnig fundi með starfsfólki OECD, m.a. Jóni Blöndal yfirmanni fjárlagadeildar OECD og Álfrúnu Tryggvadóttur, leiðandi sérfræðingi á sviði fjárlagagerðar.